Linde Healthcare er mjög annt um loftslags- og starfsumhverfismál.
Annt um starfsumhverfið
Eins og þegar um önnur lyf er að ræða fylgir notkun glaðlofts ákveðin hætta á aukaverkunum. Ekki er þó talið að glaðloftinu fylgi aukin hætta fyrir starfsfólk ef farið er eftir gildandi reglum. Nú á dögum sýna flestar rannsóknir að áhrif glaðlofts á starfsfólk séu vel undir hættumörkum.
Yfirleitt er auðvelt að draga úr magni glaðlofts í andrúmsloftinu.
Linde Healthcare hefur látið útbúa gátlista fyrir þau sjúkrahús og heilsugæslustöðvar sem nota glaðloft. Gátlistinn hjálpar til við að hafa eftirlit með lekum sem upp geta komið, óþarfa losun í andrúmsloftið og fleira. Ykkur er velkomið að hafa samband við okkur til að fá þennan lista.
Bæklingur um glaðloft og starfsumhverfi (pdf)
Virðing fyrir umheiminum
Glaðloft er notað með góðum árangri innan heilbrigðiskerfisins. Bæði sjúklingar og heilbrigðisstarfsmenn kunna vel að meta kosti þess. Umhverfisins vegna er þó mikilvægt að koma í veg fyrir allan leka og óþarfa losun.
Glaðloft er ein þeirra lofttegunda sem ýta undir gróðurhúsaáhrifin. Losun frá heilbrigðisstofnunum er þó lítil (innan við 0,1% af losun glaðlofts í heiminum). Þó er mikilvægt að þessi losun sé ekki látin í léttu rúmi liggja. Mikilvægasta framlag heilbrigðisstofnana er að koma í veg fyrir leka og óþarfa losun.
Mörg sjúkrahús hafa þegar brugðist við leka og göllum í dreifikerfum fyrir lofttegundir. Til að fleiri geti fetað í sömu fótspor býður Linde Healthcare úttekt á dreifikerfum og gasflæðilögnum sjúkrahúsa o.s.frv.
Bæklingur um glaðloft og starfsumhverfi (PDF 725 KB)
Bæklingur um glaðloft og loftslag (PDF 640 KB)