popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3
Linde Healthcare
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík, Ísland
Sími + 354 577 3030
Fax +354 577 3017
lyfjaafgreidsla@is.aga.com

Nýstárlegar rannsóknir

Starfsmenn Linde Healthcare eru í nánum tengslum við vísindamenn á sjúkrahúsum og í háskólum í Evrópu og Bandaríkjunum. Með okkar einstöku þekkingu og reynslu viljum við verða eftirsóttur samstarfsaðili þegar kemur að þróun meðferða og greiningar hvað varðar tækni- og sérfræðiþekkingu á lofttegundum.

Rannsóknir og þróun á vegum Linde Healthcare eru reknar sem eitt alþjóðasvið. Til að fá nánari kynningu á rannsóknarverkefnum okkar og rannsóknarsjóðum vísum við í alþjóðlegt vefsvæði Linde Healthcare.

REAL- Fund. Rannsóknir - Þróun - Sókn - Forysta
Í samræmi við hlutverk okkar sem leiðandi aðili á sviði lyfjalofttegunda, þá viljum við færa efnilegar hugmyndir og rannsóknir að umönnunarsviðum.

Linde Healthcare REALfund er ætlað að styðja við nýsköpunarverkefni fyrir nýja notkun lofttegunda, búnað fyrir örugga og áhrifaríka notkun lyfjalofttegunda og vöktun á áhrifum og árangri meðferða sem byggja á notkun lofttegunda, sem og þar til gerðum vörum og þjónustu.

Við höfum aðeins lítillega nýtt okkur þá möguleika sem fyrir hendi eru varðandi nýja eða endurbætta notkun. Við fögnum verkefnum sem er beint að bráðri verkjameðferð, innöndunarlyfjum og meðhöndlun sára með lyfjalofttegundum.

Þú sem ert starfandi á þessu sviði getur sótt um styrk, allt að 75 000 evrur fyrir sérhvert verkefni.
Linde Healthcare tekur á móti umsóknum og fer yfir þær með aðstoð utanaðkomandi sérfræðinga.
Á www.linde-healthcare-realfund.com er hægt að lesa meira um REALfund og ná í umsóknareyðublöð.

The Inspire Award
Verðlaununum var komið á fót árið 2005 til að hvetja til nýstárlegra læknisfræðilegra rannsókna á notkun lyfjalofttegunda á heilbrigðisstofnunum.

Fyrst og fremst er lögð áhersla á rannsóknarverkefni sem geta aukið skilning á því hvernig hægt sé að nota lyfjalofttegundir til að meðhöndla andnauð eða aðra sjúkdóma.

Verðlaunin eru veitt allt að tvisvar á ári. Fjöldi verðlauna og upphæð fer eftir gæðum rannsóknarverkefnanna.