Notkun lyfjalofttegunda er mikilvægur þáttur nútímalæknavísinda. Sem leiðandi fyrirtæki á þessu mikilvæga sviði er takmark okkar að veita starfsmönnum heilsugæslustofnana og sjúkrahúsa möguleika á að bjóða upp á betri og öruggari aðhlynningu þegar nota á lyfjalofttegundir við læknismeðferð.
Lofttegundir sem lyf
Samkvæmt Evrópsku lyfjastofnuninni (EMEA) og Lyfjastofnun flokkast lyfjalofttegundir sem lyf og þarf því að fara í gegnum sama skráningarferli og önnur lyf. Þetta felur í sér að miklar kröfur eru gerðar til skráningar á áhrifum og aukaverkunum, auk upplýsinga um hvernig lyfjalofttegundir eru meðhöndlaðar og þeim stjórnað.
Áhersla Linde Healthcare á lyfjafræðilegt gæðaeftirlit á lyfjalofttegundum, frá framleiðslu til aðhlynningar sjúklinga, eykur öryggi sjúklinga á sjúkrahúsum og í heimahjúkrun.
Þetta hefur eftirfarandi í för með sér:
- Í samræmi við stefnu Alþjóðlegu samræmingarráðstefnunnar (ICH) skráum við eiturefnaáhrif og aðrar læknisfræðilegar upplýsingar um allar lyfjalofttegundir sem við seljum.
- NIONTIX® og CONOXIA® eru nú komin í sérlyfjaskrá.
- Við nýjar ábendingar gilda sömu reglum og fyrir önnur lyf.
Upplýsingar um örugga meðferð lyfjalofttegunda má finna á þar til gerðum öryggisblöðum.