popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3
Linde Healthcare
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík, Ísland
Sími + 354 577 3030
Fax +354 577 3017
lyfjaafgreidsla@is.aga.com

Meðhöndlun hylkja

Mikill þrýstingur er í hylkjum og því skal ávallt meðhöndla þá varlega. Þegar um lyfjalofttegundir er að ræða geymir hylkið þar að auki lyf og því þarf að gera auknar kröfur um meðhöndlun þeirra.

Ekki má fjarlægja merkingar af hylkjunum eða gera þær ólæsilegar. Gangið alltaf úr skugga um að um rétta lyfjalofttegund sé að ræða með því að lesa á merkimiðann. Hylki með ólæsilegar merkingar skal ekki nota.

Gætið þess að fita, olía og óhreinindi komist ekki í snertingu við lokann eða á stillibúnaðinn. Gætið þess einnig að vera með hreinar hendur áður en hylkin eru meðhöndluð.

Farið varlega með hylkin og gætið þess að þau verði ekki fyrir höggi. Þar sem hylkin eru aldrei algjörlega tóm skal ætíð meðhöndla öll hylki eins og þau væru full.

Hylki skal ávallt geyma þannig að ekki sé hætta á að þau velti eða falli á gólfið. Festa skal hylki við vegg eða setjið það á hylkjastatíf/-vagn.

Notið þrýstijafnara
Þar sem mikill þrýstingur er á hylkjunum verður að minnka þrýstinginn áður en hægt er að tengja hylkið við búnaðinn. Til að svo megi verða er notaður svokallaður þrýstijafnari sem til er í ýmsum útgáfum. Á heilbrigðisstofnunum er miðað við að dregið sé úr þrýstingi niður í 4,5 bör. Gangið ávallt úr skugga um að þrýstijafnari sé ætlaður fyrir viðkomandi lyfjalofttegund áður en hann er notaður. Tenging þrýstijafnarans og hylkisins fer eftir því um hvaða tegund þrýstijafnara er um að ræða.

Lítil hylki eru með MaxFlow lokum
Lokar á litlum hylkjum án hylkjahettu eru með innbyggða takmörkun á hámarksflæði, svonefnt MaxFlow. Þessi takmörkun verður virk ef loki brotnar af hylkinu. Lofttegundin streymir þá út en í mjög takmörkuðu magni sem minnkar slysahættuna verulega.

Geymsla á sjúkrahúsum
Hylki skal geyma í til þess gerðu rými þar sem er með loftræstingu og viðvörunarskilti.

Lyfjalofttegundir skal geyma fjarri öðrum lofttegundum. Mismunandi tegundir af lyfjalofttegundum skal líka geyma sitt í hvoru lagi. Tóm og full hylki skal geyma á mismunandi stöðum.

Geymsla í heimahúsum
Hylki skal geyma í loftræstu og vel aðgengilegu rými. Látið búnað sem innihalda fljótandi súrefni standa upprétt. Bannað er að reykja og vera með opinn eld í sama herbergi og hylkið er geymt. Ekki skal nota tæki með logandi vírum (t.d. hárþurrkur eða brauðristar) í viðkomandi herbergi.

Leiðbeiningar um samsetningu
Þrýstijafnari gerður fyrir lykil (PDF 341 KB)


Meðhöndlun hylkja