popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3
Linde Healthcare
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík, Ísland
Sími + 354 577 3030
Fax +354 577 3017
lyfjaafgreidsla@is.aga.com

Súrefnismeðferð í heimahúsum

Í stefnu Linde Healthcare er mikil áhersla lögð á súrefnismeðferð í heimahúsum, sér í lagi lausnir sem auka hreyfanleika og frjálsræði sjúklinga. Takmark okkar er ennfremur að bæta lífsgæði og öryggi sjúklinga sem fá umönnun í heimahúsi í nánu samstarfi við heilbrigðisstofnanir.

Við viljum þróa markaðinn fyrir heimahjúkrun með því að einbeita okkur að meðferðarþjónustu sem eykur lífsgæði sjúklinga. Linde Healthcare býður upp á öruggar heildarlausnir á sviði lyfjalofttegunda, þjónustu og viðhalds.

Hylki fyrir súrefnismeðferð

LIV2
Þetta eru lítil og létt hylki fyrir lyfjasúrefni. Þau eru 2 lítra og með LIV loka, með innbyggðan þrýstijafnara, hraðtengi og flæðimæli sem þýðir einfaldari og öruggari meðhöndlun fyrir notandann og það er hægt að tengja við mismunandi fylgibúnað.

Hylkið og lokinn standast háar öryggiskröfur. Þar sem lokinn hefur innbyggðan þrýstijafnara finnur sjúklingurinn aldrei fyrir því hversu mikill þrýstingur er á hylkinu. Lokinn myndar stöðugan þrýsting upp á 4,5 bör og lokast sjálfur þegar búnaðurinn er fjarlægður.

Stálhylki
Hylki eru við afhendingu með loftþrýsting upp á 200 bör. Til að hægt sé að nota súrefnið verður því að tengja við það búnað til að minnka þrýstinginn / þrýstijafnara.

Súrefnisspari
Súrefnissparinn ECO 3000 skammtar lyfjasúrefni í fyrirfram ákveðnu magni en getur jafnframt stjórnað flæðinu þannig að það sé í takt við líkamsstarfsemina. Með því að nota ECO 3000 er hægt að láta hylkið endast mun lengur en venjuleg hylki og nýtingin eykst.

Súrefnissía
Súrefnisían er algengasta tækið sem notað er innan heimaþjónustunnar. Súrefnissían gengur fyrir rafmagni og skilur súrefni úr andrúmsloftinu. Helstu kostir sínar eru að það hún þarf mjög lítið viðhald og hún sér sjúklingi stöðugt fyrir súrefni.

Súrefnissían vegur um 25 kg, og hún er ekki færanleg á meðan hún er í gangi þar sem hún þarf að vera tengd rafmagni. Þess vegna eru notaðir súrefniskútar sem ferðabúnaður.

Súrefnisnotkun í heimahúsi (PDF 555 KB)
Dysa flæðiskammtari (PDF 262 KB)
ECO 3000 (PDF 164 KB)
Reiknitafla vegna súrefnisnotkunar (PDF 93 KB)
Helios plús 300 (PDF 179 KB)
HemLOX (PDF 145 KB)
Spirit 300 (PDF 171 KB)
Stroller (PDF 157 KB)
Töskur (PDF 201 KB)