popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3
Linde Healthcare
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík, Ísland
Sími + 354 577 3030
Fax +354 577 3017
lyfjaafgreidsla@is.aga.com

LIV™ – Linde Integrated Valve

LIV™ er notendavæn lausn fyrir hreyfanlega súrefnismeðferð sem eykur öryggi bæði sjúkraflutningamanna og sjúklinga. Ekki er lengur þörf á að skipta um þrýsijafnara, að kljást við ójafnan þrýsting eða að eiga hættu á leka. Innbyggður þrýstijafnari stjórnar stöðugum og lágum þrýstingi. Einnig er innbyggður flæðistillir til að stilla flæði.

LIV™ er með innbyggðan þrýstijafnara, hraðtengi og flæðiveljara sem gerir það að verkum að einfalt og öruggt er að tengja búnaðinn.

Létthylkin eru framleidd úr þunnum álkjarna sem varin er með trefjaglersfilmu. Þriggja lítra hylkið LIV™ fyrir CONOXIA® er um það bil 4,2 kíló með lyfjasúrefni og passar í hylkjakörfu og hylkjakassa.

Kostirnir eru fleiri

  • Léttir.
  • Skýr notkunartafla á lokanum.
  • Stjórn á flæði.
  • Skjárinn er skýr, jafnvel þegar lokinn er fyrir.
  • Þægileg handföng sem auðvelda flutning.
  • Einfalt og öruggt að skipta um hylki.

LIV™ vöruupplýsingar (PDF 1,21 MB)
Hylkjavagn (PDF 1,3 MB)