popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3
Linde Healthcare
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík, Ísland
Sími + 354 577 3030
Fax +354 577 3017
lyfjaafgreidsla@is.aga.com

Súrefni í heimahúsi

Til eru þrjár mismunandi súrefnismeðferðir til að nota í heimahúsum.

  • Fljótandi súrefni
  • Súrefni í hylkjum
  • Súrefnissía

Leiðbeiningar
  • Notaðu ætíð súrefni samkvæmt fyrirmælum læknisins. Ekki prófa þig áfram á eigin spýtur
  • Þrýstijafnarinn á hylkjum leiðir til þess að þrýstingurinn minnkar í hylkjunum. Það þýðir að súrefnið sem sjúklingurinn andar að sér er ekki undir miklum þrýstingi.
  • Þegar notaður er raki skal gæta þess að rakadósin sé hrein.

Örugg notkun
  • Þú skalt alltaf lesa leiðbeiningarnar áður en þú notar eða flytur tækið.
  • Ef þú ert að nota fljótandi súrefefni þá má ekki snerta frosnu hlutana á HemLox-tækinu. Fljótandi súrefni er mjög kalt (-183°C) og getur valdið kuli ef það kemst í beina snertingu við húð.
  • Hafðu samband við heilbrigðisstarfsfólk ef þig grunar að tækið virki ekki. Ekki reyna að laga tækið á eigin spýtur.
  • Slökktu á tækinu þegar það er ekki í notkun.
  • Mikilvægt er að ganga vel um búnaðinn. Kviknað getur í fitu og olíu þegar þessi efni komast í samband við súrefni sem er undir miklum þrýstingi. Sjáðu því til þess að lokar og tengi séu laus við slík efni og gættu þess að fita komist ekki inn í lokann þegar þú tengir þrýstijafnarann við tækið. Þó er í lagi að nota húðáburð eða varasalva á meðan á súrefnismeðferð stendur.

Að ferðast með súrefni
  • Ef þú ert ekki viss hvort þú þarft súrefni á meðan á flugi stendur skaltu hafa samband við lækni.
  • Fæst flugfélög leyfa að þú takir tæki fyrir súrefnisgjöf um borð. Hafðu því samband við flugfélagið fyrir brottför.

Brunahætta
  • Í sjálfu sér fylgir súrefni engin aukin brunahætta, en hærra súrefnishlutfall í andrúmslofti getur hraðað brunaferlinu og leitt til þess að það kvikni í hlutum sem annars ættu að vera öruggir.
  • Leggðu aldrei súrefnisgrímu eða súrefnisgleraugu beint á/í vefnaðarvörur (föt, rúmföt) á meðan tækið er í notkun. Súrefnið sem streymir út getur „mettað“ efnið og gert það að verkum að brunahættan verði meiri.
  • Ef þig grunar að vefnaðarvara sé „mettuð af súrefni“ er mikilvægt að hrista hana og viðra vel. Ekki nægir að viðra efnið aðeins lítillega.
  • Bannað er að reykja og vera með opinn eld (eins og kerti, kamínu og arin) nálægt súrefnistækjum.
  • Ekki nota rafmagnstæki eins og hárþurrkur eða brauðristar á meðan á súrefnismeðferð stendur.
  • Ef eldur kviknar skal slökkva á tækinu.