popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3
Linde Healthcare
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík, Ísland
Sími + 354 577 3030
Fax +354 577 3017
lyfjaafgreidsla@is.aga.com

NIONTIX®

Deyfandi áhrif glaðloftsins hafa verið þekkt í meira en 150 ár. Glaðloftið varð fljótt mjög útbreitt sem almennt deyfilyf og er enn notað á sjúkrahúsum um allan heim.

NIONTIX® (glaðloft) er notað sem deyfing framkvæmd með innöndun með öðrum lyfjum. Þökk sé deyfandi áhrifum glaðloftsins að það er einnig notað með lyfjasúrefni, til að lina þjáningar við sársaukafullar aðgerðir á heilbrigðisstofnunum, sem og við barnsburð, í sjúkrabifreiðum og við tannviðgerðir.

Glaðloftið er efnasamband köfnunarefnis og súrefnis. Efnafræðilega heitið er tvínituroxíð (N2O). Glaðloft gefur frá sér sætan bragðkeim og lykt. Lofttegundirnar sem sjúklingurinn andar að sér er blanda af glaðlofti og súrefni.

Glaðloftið fer fljótt út í blóðið. Loftið fer með blóðrásinni til þeirra líffæra sem taka við og koma áleiðis sársaukaboðum, t.d. mænu og heila. Það dregur úr sársaukaboðum og losun endorfíns eykst.