Nú á dögum er súrefnisgjöf ein af grunmeðferðunum á heilbrigðisstofnunum. Sjúklingar sem sýna merki um súrefnisskort er kerfisbundið gefið aukið súrefni. Sjúklingar sem eru með langvarandi lungnateppu (COPD), astma á háu stigi og kæfisvefnseinkenni geta þurft á súrefnisgjöf að halda heima hjá sér.
Lyfjasúrefni er aðgengilegt á heilsugæslustöðvum, í sjúkrabifreiðum, á neyðarmóttökum og á sjúkradeildum. Súrefnið er annað hvort leitt úr litlum súrefnishylkjum eða úr dreifikerfi heilbrigðisstofnanna.
Lyfjasúrefnið er gefið sjúklingi með súrefnisgleraugum eða öndunargrímu. Á gjörgæslu og við svæfingu er lyfjasúrefnið notað til að auka styrk súrefnis í innöndunarlofti sjúkling eftir þörfum hans.
Lyfjasúrefni er standard meðferð við kolmónoxíðeitrun, ýmist sem súrefnismeðferð með venjulegum loftþrýstingi en í miklu magni, eða í erfiðum tilfellum með háþrýstingi (sk. þrýstiklefameðferð).