Sjúkrahús eru með dreifikerfi fyrir lyfjalofttegundir til að tryggja öryggi og hagstæðari dreifingu. Lyfjaloft er leitt úr tanki, hylkjabúnti eða stökum hylkjum eftir lögnum og að úttökum á víð og dreif um sjúkrahúsið.
Dreifikerfið getur innihaldið:
- lyfjasúrefni í fljótandi formi á tönkum og sem varabirgðir, samanþjappað súrefni á hylkjum eða hylkjabúntum.
- Glaðloft á hylkjum.
- Lyfjaöndunarloft ýmist frá loftpressum sjúkrahússins eða úr hylkjum/hylkjabúntum.
- Sérstakar lofttegundir fyrir einstaka notendur, t.d. rannsóknarstofur.
Tæmingarstöð
Er á neðstu hæð sjúkrahússins eða í sérbyggingu.
Lágþrýstibúnaður
Sér til þess að hægt sé að dreifa lyfjalofttegundum með minni þrýstingi út í mismunandi byggingar eða deildir sjúkrahússins. Búnaðurinn dregur úr og jafnar mismunandi þrýsting í tæmingarstöðinni og í súrefnistankinum.
Þrýstivakt
Fylgist með að súrefnisþrýstingurinn sé alltaf hærri en þrýstingurinn á glaðloftinu. Þetta er gert til að glaðloftið streymi ekki inn ef lokað er fyrir súrefnið. Þrýstivaktin er einnig varadreifikerfi deildarinnar. Ef loka þarf tímabundið fyrir aðaldreifikerfið er hægt að tengja varahylki beint við þrýstivaktina.
Viðvörunarbúnaður
Sýnir ef eitthvað óvænt á sér stað sem áhrif hefur á loftþrýstinginn. Ef varað er við lágum þrýstingi verður að tengja varahylki. Viðvörunarbjöllurnar er einnig hægt að færa yfir á mannaða öryggismiðstöð.
Neyðarloki
Ef bilun kemur upp í aðgerðarstofu eða leki í úttökum, má skrúfa fyrir flæði lofttegunda með því að nota neyðarlokann. Neyðarlokanum er komið fyrir á gangi fyrir utan hverja stofu. Með þessum búnaði er auðvelt að skrúfa fyrir lyfjalofttegundirnar í viðkomandi sal, án þess að það trufli aðra starfsemi sjúkrahússins.
Loftúttak í vegg eða í lofti
Lyfjasúrefni, glaðloft, lyfjaloft og öndunarloft kemur yfirleitt úr loftúttökum sem komið hefur verið fyrir á veggjum eða í lofti. Þessi loftúttök eru þannig hönnuð að ekki er hægt að tengja þau við ranga slöngu. Úttaksloki lokast sjálfkrafa þegar slangan eða búnaðurinn er aftengdur. Þá getur loftið ekki lekið óhindrað inn á sjúkrastofuna.