NIONTIX® (glaðloft) er skráð lyf með meira en 150 ára reynslu. Glaðloft er notað ásamt öðrum svæfingalyfjum og sem verkjastillandi/deyfandi lyf í öllum aðstæðum þar sem skjótvirkra áhrifa er óskað.
Virkni og aukaverkanir eru vel þekktar og auðvelt að stjórna þeim. Notkun þessa lyfs er einstaklega víðtæk og örugg.
Þegar litið er til klínískra eiginleika þess (skjótvirkra áhrifa, lágmarksáhrifa á hjarta og lungu og skjótrar vöknunar) og lágs kostnaðar er glaðloft hagkvæmur valkostur með öðrum svæfingalyfjum í dag.
Glaðloft hefur hlutfallslega minni áhrif á öndun og blóðflæði en önnur sambærileg svæfingalyf. Þar sem almenn svæfing byggist á samsetningu glaðlofts og viðeigandi svæfingalyfs eru áhrifin á öndun og blóðflæði minni en ef svæfingin væri eingöngu gerð með svæfingalyfi. Svæfing með samblandi glaðlofts og annars svæfingalyfs bætir sjálfvirka öndun í svæfingu, styttir vöknunartíma og flýtir fyrir bata sem getur stytt þann tíma sem sjúklingar eru á skurðdeildinni.
NIONTIX® er skráð lyf. Það felur í sér að framleiðsla og meðhöndlun glaðloftsins uppfyllir kröfur Lyfjastofnunar Evrópu og Lyfjastofnunar um lyf.
Bæklingur (PDF 3,01 MB)
Lyfjaupplýsingar (PDF 145 KB)
SPC (PDF 175 KB)
Öryggisupplýsingar (PDF 100 KB)