Mörgum sem háðir eru súrefnisgjöf finnst alltof flókið og erfitt að ferðast. Til þess að auðvelda þessu fólki að ferðast til annarra landa höfum við ásamt samstarfsaðilum okkar, International SOS, byggt upp þjónustuna OXYTRAVEL®.
OXYTRAVEL® útvegar þér súrefni á meðan á ferðlaginu stendur auk þess sem það gefur þér kost á að fá súrefni sent á áfangastað. Í samstarfi við International SOS getum við boðið upp á sólarhringsþjónustu alla daga vikunnar.
Ef þú ætlar að ferðast og hefur í hyggju að notfæra þér þjónustu OXYTRAVEL® ertu vinsamlegast beðin(n) um að fylla út eyðublað (smelltu á tengilinn til að sækja eyðublaðið).
Þegar þú hefur fyllt út eyðublaðið sendirðu það til oxytravel@linde-gas.com, a.m.k. 14 dögum áður en ferðin hefst. Þú getur einnig faxað blaðið í faxnúmerið + 420 222 111 126.
Þegar við höfum fengið umsóknina í hendur munum við senda þér upplýsingar um súrefnið sem í boði er á áfangastað.