Linde Healthcare er með 100 ára reynslu í framleiðslu lyfjalofttegunda og þróun kerfa til notkunnar þeirra á heilbrigðisstofnunum. Afrakstur þessarar reynslu er Safe Medical System (SMS) eða örugg lyfjakerfi.
Safe Medical System er ætlaðað tryggja að notkunarbúnaður lyfjalofttegunda og öryggisráðstafanir séu ætíð í samræmi við gildandi kröfur.
Safe Medical System nær til verkþátta eins og:
- Áhættumats vegna heilbrigðiskerfa
- Uppbyggingar kerfa
- Mælingar á þjónustugetu
- Tanka
- Viðvörunarkerfa
- Fræðslu
- Verkefnastjórnunar
- Brunavarnamats vegna lofts
- Meðhöndlunar hylkja samkvæmt GDP-staðli (Good Distribution Practices)
- Greiningar á lyfjalofttegundum samkvæmt Ph. Eur.
- Skráningar tæknilegra mála
- Þjónustu og viðhalds
- Eftirlits með kerfi
- Varaforða
- Rekstrar
- Kerfisábyrgð samkvæmt HB 370
Allt starfsfólk Linde Healthcare hefur hlotið fræðslu í GDP, GMP (Good Manufacturing Practices) og öryggisatriðum lyfjalofttegunda. Við tökum virkan þátt í gerð staðla og vorum frumkvöðlar í að fá opinbera lyfjaskráningu fyrir lyfjalofttegtundir. Við viljum í samstarfi við heilbrigðisstofnanir byggja upp öruggt dreifikerfi fyrir lyfjalofttegundir.
Linde Healthcare hefur látið útbúa vandaða handbók um dreifikerfi lyfjalofttegunda og hefur hún verið viðurkennd af fagaðilum.
Bæklingur (PDF 471 KB)