popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3
Linde Healthcare
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík, Ísland
Sími + 354 577 3030
Fax +354 577 3017
lyfjaafgreidsla@is.aga.com

Lagaleg ákvæði

Linde Healthcare (LH) leitast við að tryggja að þær upplýsingar sem koma fram á þessu vefsvæði séu ítarlegar og réttar. LH getur hins vegar ekki tryggt að svo sé. LH getur heldur ekki tryggt að vefsvæðið eða sá netþjónn sem er notaður, sé laus við tölvuveirur eða annan skaðlegan hugbúnað. Þetta á einnig við um önnur vefsvæði sem tenglar kunna að vera í. LH tekur ekki á sig neina ábyrgð á þeim vefsvæðum sem farið er á með slíkum tenglum. Enn fremur áskilur LH sér rétt á að breyta eða leiðrétta þessar upplýsingar hvenær sem er án þess að tilkynna slíkt fyrirfram.
LH getur ekki tekið á sig neina ábyrgð á beinu eða óbeinu tapi eða tjóni sem kann að verða vegna aðgangs að, eða notkunar á eða takmörkuðum aðgangi að þessu vefsvæði eða hugsanlegra villna eða ónákvæmni í efni þess.

Allar tilvísanir í vörur og þjónustu á þessu vefsvæði eru eingöngu í upplýsingaskyni. Þessu vefsvæði er ekki ætlað að veita sérstök læknisráð. Við mælum með að notendur sem þurfa á læknisráðgjöf að halda hafi samband við viðeigandi starfsfólk í heilbrigðisgeiranum.

Höfundarréttur
Þær upplýsingar og myndir sem birtast á þeim síðum sem LH gefur út eru háðar réttindum LH nema annað komi fram.

Aðeins er leyfilegt að afrita skjöl eða síður á þessu vefsvæði til notkunar sem ekki er viðskiptalegs eðlis, innan fyrirtækis þíns eða samtaka. Slík afritun er háð því að upplýsingar um höfundarrétt og önnur réttindi komi skýrt fram. Umfram það er ekki heimilt að dreifa, afrita eða breyta nokkrum hluta þessa vefsvæðis eða á annan hátt að afrita myndir, texta eða annað efni á þessu vefsvæði.

Hugverkaréttur
Vöruheiti sem vísað er til á þessu vefsvæði eru vörumerki í eigu LH eða dótturfyrirtækja þess. Notkun á þessu svæði skal ekki teljast sem leyfisheimild eða önnur réttindi til að nota hugverk, svo sem einkaleyfi, vörumerki eða önnur réttindi í eigu LH eða þriðja aðila.