transparant gif
popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3
Linde Healthcare
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík, Ísland
Sími + 354 577 3030
Fax +354 577 3017
lyfjaafgreidsla@is.aga.com

Deyfing við barnsburð

Glaðloft er algengasta deyfingaraðferðin sem notuð er við barnsfæðingar. Áhrifanna gætir fljótt án þess að þau skerði hreyfigetu móðurinnar meðan á fæðingu stendur. Auk þess hverfa þau fljótt úr líkamanum. Glaðloft er hægt að nota með öðrum deyfilyfjum.

Engar þekktar aukaverkanir hafa neikvæð áhrif á öndun, blóðrás, úrvinnslu verkja eða aðra líkamlega starfsemi. Ekki er heldur vitað til þess að glaðloftið hafi neikvæð áhrif á barnið. Glaðloftið er auk þess eina lyfjafræðilega deyfingaraðferðin sem konan sjálf getur stjórnað.

Sársauki við fæðingu er annars eðlis en annar sársauki. Þessi sársauki gefur móðurinni jákvæð merki um að barnið sé á leiðinni í heiminn. Sársaukinn byrjar ekki snögglega. Hann eykst smátt og smátt, verður sterkari eftir því sem nær dregur og líður svo hjá. Stefnt er að því að konan nái sjálf að stjórna sáraukanum eftir því sem líður á fæðinguna.

Deyfingaraðferðir
Venja er að tala um náttúrulegar og læknisfræðilegar deyfingaraðferðir. Náttúrulegu deyfingaraðferðirnar felast í því að líkaminn noti eigin aðferðir til að draga úr sársaukanum. Líkaminn er örvaður til að framleiða deyfandiefni, m.a. endorfín (morfín líkamans). Einnig er hægt að draga úr sársauka með því að örva önnur taugaboð, t.d. með hita, veikum rafboðum (TENS) eða sprautum (dauðhreinsað vatn). Náttúrulegu deyfingaraðferðirnar bera mestan árangur þegar útvíkkun er á byrjunarstigi.

Glaðloft
Glaðloft tilheyrir almennum deyfingarlyfjum, en ólíkt morfínlyfjum stýrir konan inntöku lyfsins sjálf.

Blöndu af glaðlofti og súrefni er gefið með grímu, súrefnisgleraugum (súrefnisbeisli) eða munnstykki. Algengur styrkur er 50–70% glaðloft í súrefni en honum er hægt að breyta eftir þörfum. Til þessa er hægt að nota VENTYOTM frá Linde Healthcare.

Við innöndun fer glaðloftið út í blóðið. Glaðloftið fer með blóðrásinni til þeirra líffæra sem taka við og koma áleiðis sársaukaboðum, og hefur þannig deyfandi áhrif. Deyfingin hefur áhrif strax eftir 5 eða 6 andartök. Áhrifin hverfa fljótlega þegar konan tekur af sér grímuna.