transparant gif
popup arrow pop connector1 pop connector2 pop connector3
Linde Healthcare
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík, Ísland
Sími + 354 577 3030
Fax +354 577 3017
lyfjaafgreidsla@is.aga.com

Hortons (höfuðverkur)

Hortons-höfuðverkur er óvenjulegur sjúkdómur sem hrjáir karlmenn frekar en konur. Hann birtist sem mjög mikill höfuðverkur sem oftast er svæðisbundinn í kringum annað augað.

Höfuðverkurinn kemur í bylgjum með endurteknum köstum og bylgjurnar koma á nokkurra vikna eða mánaða fresti.

Verkurinn byrjar snögglega og getur varað frá 15 mínútum í allt að nokkrum klukkutímum. Oftast koma köstin einu sinni eða tvisvar á sólarhring en geta komið aftur allt að átta sinnum. Á meðan kastið stendur yfir er algengt að augun verða rauð og það rennur úr þeim, augasteinninn verði lítill og augnlokið hangandi. Nefstífla eða nefrennsli geta fylgt.

Áfengi í litlu magni getur orsakað kast ef einstaklingurinn er í miðri bylgju. Lyf sem eru æðavíkkandi, t.d. nítróglyserín, geta líka valdið köstum.

Meðferð með súrefni
Með súrefnisgjöf er oft hægt að stöðva eða draga úr köstunum á innan við 10–15 mínútum. Meðferðin felur oftast í sér að sjúklingurinn andi að sér 100% súrefni.