Langvinn lungnateppa eða LLT er samheiti yfir lanvinna berkjubólgu og lungnaþembu. Þrengsli í berkjunum eykst smátt og smátt sem leiðir til versnandi starfsemi lungnanna sem er ekki viðsnúanleg. Það er þó hægt að stöðva frekari þróun sjúkdómsins með því að hætta að reykja.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) telur að langvinn lungnateppa sé fjórða algengasta dánarorsökin á eftir hjartasjúkdómum, krabbameini og heilablóðfalli. Þrátt fyrir þetta er sjúkdómurinn vangreindur og ekki meðhöndlaður sem skyldi.
Einkenni LLT er hósti og slímuppgangur en seinna fer að bera á aukinni mæði. Helsta orsök LLT eru reykingar en ýmiskonar mengun getur líka þróað sjúkdóminn.
Rannsóknir hafa sýnt að súrefnismeðferð getur aukið lífslíkur og gert sjúklinginn líkamlega betur á sig kominn.
Langtímameðhöndlun með súrefni er algengasta meðhöndlun á sjúklingum með lungnateppu á háu stigi.
Til eru þrjár mismunandi aðferðir við að gefa súrefni í heimahúsum:
- Súrefnissía
- Fljótandi súrefni
- Súrefni sem lyfjalofttegund á hylki
Læknirinn mælir með þeirri meðferð sem hentar.
Sterk tengsl eru á milli reykinga og langvinnrar lungnateppu (um það bil 90%). Til að súrefnisgjöfin verki verður sjúklingurinn að hætta að reykja. Þar að auki er mikilvægt að ekki sé reykt nálægt súrefninu þar sem þetta myndi hafa í för með sér aukna brunahættu.
Ætíð skal gefa súrefni í samræmi við fyrirmæli læknis. Ef grunur leikur á að tækið virki ekki sem skyldi skal hafa samband við heilbrigðisstarfsfólk.