HBO er samþykkt meðferð við kafaraveiki.
HBO táknar að sjúklingi er gefið hreint súrefni undir þrýstingi sem er 2 til 3 sinnum hærri en eðlilegur loftþrýstingur. Þessi meðferð er gefin í þrýstiklefum sem eru m.a. er að finna á Landspítala Háskólasjúkrahúsi. Með því að veita slíka meðferð er hægt að auka súrefnismettun í vefjum í allt að 10 sinnum hærri gildi en þegar lofti er andað að sér við eðlilegan loftþrýsting.
Meðferðin er notuð við ýmsar kringumstæður þegar ná þarf góðri súrefnismettun út í vefi og einnig má nota hana til að fjarlægja kolmonoxíð hraðar úr blóðinu við kolmonoxíðeitrun og við kafaraveiki þegar komið er of hratt úr kafi hefur leitt til þess að köfnunarefni leysist upp í líkamanum og þarf að skilja ut
HBO er einnig notað við margar aðrar aðstæður og gefur oft góðan árangur. Nefna má meðal annars alvarlegar sýkingar í mjúkvef, kolmonoxíðeitrun og þrálát sár af völdum lélegrar blóðrásar.