Verkjastilling við fæðingu
Glaðloft eða tvínituroxíð er algengasta aðferðin við verkjastillingu við barnsfæðingar. Hún virkar hratt, takmarkar ekki hreyfigetu móður meðan á fæðingu stendur og hverfur hratt úr líkamanum. Tvínituroxíð má nota ásamt öllum öðrum tegundum deyfilyfja.
Ekki er vitað um neinar aukaverkanir á öndun, blóðrás eða aðra líkamsstarfsemi. Ekki er vitað um neinar aukaverkanir á barnið. Tvínituroxíð er auk þess eina verkjastillingin í formi lyfs sem konan stjórnar sjálf.
Verkir við fæðingu eru öðruvísi en aðrir verkir. Þeir eru jákvætt merki um að fæðingin gangi eðlilega fyrir sig og að barnið sé á leiðinni. Verkirnir birtast ekki skyndilega. Þeir koma smátt og smátt, aukast og dofna. Taktur fæðingarhríða gerir konum kleift að venjast verkjunum og að læra að bregðast við þeim sjálfar.
Aðferðir við verkjastillingu
Aðferðum við verkjastillingu er venjulega skipt í náttúrulegar og læknisfræðilegar aðferðir. Þær náttúrulegu tákna að notast er við verkjastillandi eiginleika líkamans sjálfs. Líkaminn er örvaður til að framleiða ýmis verkjastillandi efni, svo sem endorfín (morfín líkamans). Einnig má koma í veg fyrir verki með því að örva önnur taugaviðbrögð, til dæmis með hita, smáum rafboðum (TENS) eða inndælingum (sæft vatn). Náttúruleg verkjastilling dregur venjulega mest úr verkjum þegar útvíkkun á sér stað.
Tvínituroxíð
Tvínituroxíð er almenn leið til verkjastillingar en öfugt við lyf sem líkjast morfíni stjórnar konan magninu sjálf.
Blöndu af tvínituroxíði og súrefni er andað inn gegnum andlitsgrímu, slöngu í nef eða munnstykki. Algengur styrkur er 50-70% tvínituroxíð í súrefni en aðlaga má styrkinn eftir þörfum. VENTYO® búnaðurinn frá Linde Healthcare er til dæmis ætlaður til slíks.
Upptaka tvínituroxíðs á sér stað í blóði við innöndun. Lofttegundin berst með blóðrásinni í líffæri líkamans sem fá og bera áfram verkjaboð og hafa áhrif á þau. Verkjastillandi áhrif koma fram eftir aðeins fimm til sex andardrætti. Þau minnka hratt þegar hætt er að anda um grímuna.