Til þess að ná þessu markmiði fylgjum við ákveðnum grunnreglum. Dæmi um slíka reglu er að allt sem við gerum ákvarðast af öryggi, heilsu, umhverfi og gæðum.
Til þess að gera okkur kleift að vera leiðandi á þessu sviði höfum við sett okkur eftirfarandi markmið:
Að koma í veg fyrir allar aukaverkanir
Að forðast öll skaðleg áhrif á umhverfið
Að skapa tryggt og öruggt starfsumhverfi fyrir starfsmenn okkar og alla samstarfsaðila - Að veita viðskiptavinum okkar öruggar og umhverfisvænar vörur og þjónustu
Að forðast að menga umhverfið
Að umgangast náttúruauðlindir á ábyrgan hátt
Að þróa og kynna tækni, vörur og þjónustu sem uppfylla kröfur hvað varðar öryggi, heilsu, umhverfisvernd og gæði
Að uppfylla kröfur sem viðskiptavinir okkar setja okkur sem og væntingar þeirra.