Lungnablöðrur
Fleirtala af „lungnablaðra“. Örlitlar loftblöðrur í lungunum þar sem loftskipti á súrefni og koldíoxíði eiga sér stað.
Liðspeglun
Skurðaðgerð með lágmarks inngripi til að gera við liðamót.
Berkjur
Fleirtala af „berkja“. Aðalöndunarvegur til lungna, sérstaklegatvær meginberkjur frá barka gr.
Holnál
Mjór leggur sem er sett inn í holrúm í líkamanum, notað sem dren fyrir vökva eða til að gefa lyf.
Innsetning holnálar
Innsetning holnálar inn í holrúm í líkamanum, eins og æð.
Lághitageymsla
Varðveisla frumna, vefjar, líffæra eða fósturvísa með frystingu.
Frystiskurðaðgerð
Frysting (venjulega með köfnunarefni í vökvaformi) til þess að fjarlægja óæskilegan eða sjúkan vef.
Lághitameðferð
Frysting (venjulega með köfnunarefni í vökvaformi) til þess að fjarlægja óæskilegan eða sjúkan vef.
Þind
Vöðvi neðan við lungun sem dregst saman við innöndun og slaknar við útöndun.
Holsjárskoðun
Skoðun innan líkamans með holsjá, sem er mjótt, slöngulaga áhald með ljósgjafa og sjónvarpsmyndavél til að skoða á öðrum endanum. Þetta er skurðaðgerð með lágmarks inngripi.
Barkaslanga
Slanga til að hjálpa til við öndun sem er sett gegnum nef eða munn sjúklings og niður í barka.
Súrefnisskortur
Lífshættulegur skortur á magni súrefnis til frumna og vefja líkamans.
Súrefnisskortur í blóði
Ófullnægjandi magn súrefnis til frumna og vefja líkamans. Ekki lífshættulegt þegar í stað.
Lofttegund til innblásturs
Lofttegund sem blásið er í holrúm í líkamanum til þess að stækka það, til dæmis svo hægt sé að framkvæma skurðaðgerð með lágmarks inngripi.
Kviðarholsspeglun
Skoðun innan líkamans með kviðsjá, sem er mjótt, slöngulaga áhald með gjafaog sjónvarpsmyndavél til að skoða á öðrum endanum. Þetta er skurðaðgerð með lágmarks inngripi.
MACawake
Lágmarksstyrkur innandraðra svæfingarlyfja í lungnablöðrum (MAC) þegar viðkomandi vakna og opnar augun eftir svæfingu þegar yrt er á hann.
MACincision
Lágmarksstyrkur innandraðra svæfingarlyfja í lungnablöðrum (MAC) sem kemur í veg fyrir hreyfingu við upphafsskurð í skurðaðgerð.
Barki
Barkinn sem tengir neðsta hluta hálsins við lungun.