Linde Healthcare hefur úrval vel valins búnaðar til að tryggja gæði og öryggi fyrir þig og sjúklinga þína. Hönnun, framleiðsla, dreifing, uppsetning og þjálfun eru lykilatriði fyrir hylki, súrefnisvélar, flæðimæla, sogventla, andlitsgrímu, síur og annan nauðsynlegan búnað til að gefa lyfjalofttegundir.
Hönnun lausna til að bæta heilbrigðisþjónustu hefur ekki bara með vísindi og verkun að gera. Heldur einnig hvernig meðhöndlun og meðferð er veitt af umönnunaraðila og hvernig hún virkar á sjúklinginn. Vinnuvistfræði getur til dæmis verið mjög mikilvæg í sjúkrabíl, á fjölsóttu sjúkrahúsi og á læknastofum. Áhrifin á sjúkling skipta megin máli en auðveld stjórnun og þægileg notkun getur bætt aðstæður heilbrigðisstarfsfólks svo um munar.