Hækkandi meðalaldur og aukning langvinnra sjúkdóma þýðir að aukinn þrýstingur er settur á heilbrigðisþjónustuna. Markmið okkar er að aðstoða viðskiptavini okkar við að veita þjónustu sem snýr að sjúklingnum sem er bæði hagkvæm og veitir klínískan ávinning.
Í neyðartilvikum eru lyfjalofttegundir notaðar til aðstoðar við skyndihjálp og auðvelda önnur björgunarstörf.
Við klíníska umönnun eru lyfjalofttegundir notaðar á öllum deildum sjúkrahúsa sjúklingum til stuðnings allt frá sjúkdómsgreiningu til meðferðar.
Við tökum virkan þátt í meðhöndlun sjúkdóma og samþættum þjónustu við sjúklinga með kæfisvefn og fyrir þá sem þurfa að fá súrefnisþjónustu í heimahúsi.
QI Services Linde Healthcare fyrir lyfjalofttegundir er í nánu samstarfi við heilbrigðisstarfólk til þess að finna lausnir og búnað sem uppfyllir best kröfur þeirra.