Linde Healthcare einbeitir sér að gæðum og öryggi sjúklinga þar sem uppfylltar eru kröfur reglugerða og staðla fyrir lyf og lækningatæki, allt frá vali á hráefnum við framleiðslu til lyfjagjafar með lofttegundunum.
Linde Healthcare hefur verið brautryðjandi í framleiðslu lyfjalofttegunda í mörg ár. Við vinnum náið með heilbrigðisþjónustunni og heilbrigðisyfirvöld og stuðlum þannig að góðu verklagi við notkun á vörum okkar.Við fylgjumst með framförum í læknisfræði og höldum áfram að þróa og hanna lausnir til að uppfylla kröfur heilbrigðisstarfsfólks og sjúklinga. Við veitum stuðning varðandi dreifingu og notkun lyfjalofttegunda , þar með talið birgðastjórnun, öryggiskerfi, tæknilegar lausnir og þjónustu auk þjálfunar.
Við fylgjum viðmiðunarreglur um lyf sem settar eru af International Conference on Harmonisation (ICH) við skráningu öryggis og verkunar lyfjalofttegunda okkar.
Skráning okkar fyrirhefðbundnar lyfjalofttegundir, svo sem súrefni og tvínituroxíð uppfylla reglugerðir sem gefnar eru út af viðkomandi lyfjayfirvöldum.
Góð skráning á á forklínískum og klínískum meðferðum með lofttegundum uppfylla sömu kröfur og gerðar eru fyrir ný lyfjaefni.