Við höfum unnið í nánu samstarfi við viðskiptavini okkar í meira en 125 ár og höfum ávallt tekist á við áskoranir til þess að geta veitt hágæðaþjónustu. Sýn okkar á umhverfi viðskiptavina gerir okkur kleift að bjóða upp á hágæða vörur og frábæra þjónustu.
Nýjungar fyrir viðskiptavini
Viðskiptavinir okkar eru ástæða þess að við erum til og þeir eru forsenda fyrir núverandi og áframhaldandi velgengni okkar. Markmið Linde Healthcare er að veita nýjungar á öllum sviðum viðskipta okkar til þess að halda í núverandi viðskiptavini, laða að nýja viðskiptavini og komast inn á nýja markaði.
Vilji til að skara fram úr
Við höfum skyldur og drifkraft til að framfylgja jafnvel enn meiri kröfum með stöðugum úrbótum og skuldbindingum. Linde Healthcare leitast við að skara fram úr með það að markmiði að bæta alla þætti fyrirtækisins, vinnuferla og starfsemi.
Hvatning starfsmanna
Við gefum starfsfólki okkar tækifæri til að leggja sitt af mörkum og vaxa í starfi. Linde Healthcare trúir á hvatningu starfsmanna sinna þar sem hæfir og ábyrgir einstaklingar stuðla að velgengni, bæði fyrir viðskiptavinina og fyrirtækið.
Velgengni með fjölbreytileika
Fjölbreytileiki bætir samstarf og veitir betri lausnir. Við hjá Linde Healthcare trúum því að fjölbreytileiki starfsmanna okkar, hæfni þeirra, alþjóðlegt orðspor okkar og fjölbreytt starfsemi geri okkur kleift að skilja vandamál og álag innan heilbrigðisþjónustunnar og til að mæta vaxandi þörfum viðskiptavina okkar.