Blanda af tvínituroxíði/súrefni til innöndunar má nota við ýmsar aðstæður þar sem þörf er á skjótri verkjastillingu/róandi verkun sem útskilst hratt, eins og við neyðarþjónustu. Lág leysni tvínituroxíðs í lífrænum vef og vökva þýðir að blanda af tvínituroxíði og súrefni dregur hratt úr verkjum og lofttegundirnar skiljast hratt út frá lungum. Annar öryggisþáttur er samsetningin á innandaðri blöndu af 50% tvínituroxíði og súrefni til að koma í veg fyrir súrefnisskort meðan á lyfjagjöf stendur.
LIVOPAN® er gefið með innöndun svo ekki er þörf á að setja upp holnál eða setja upp slöngu í æð. Þetta þýðir að ekki þarf svæfingalækni til að gefa verkjastillingu heldur má þjálfað starfsfólk svo sem bráðatækna til að sjá um lyfjagjöfina.
Til að nálgast frekari upplýsingar um frábendingar, sérstök varnaðarorð eða varúðarráðstafanir skal hafa samband við Linde Healthcare.