Góð þjónusta og öryggi skipta að sjálfsögðu megin máli, svo mikilvægt er að súrefni sé meðhöndlað meðvarúð. Linde Healthcare hefur lyfjasúrefni , vörur og þjónustu semð uppfylla kröfur heilbrigðisþjónustunnar og þjónustu við sjúklinga í heimahúsum.
Framfarir í notkun súrefnis hefur leitt til aukinnar klíniskrar notkunar meðal annars:
Við að meðhöndla súrefnisskort og súrefnisþurrð í blóði.
Við skurðaðgerð til þess að halda uppi súrefnismettun í vef meðan á svæfingu stendur.
Við endurlífgun.
Í öndunarvélar vegna meðferðar við öndunarbælingu.
Við meðhöndlun á langvinnri lungnateppu (COPD), ryklungum, lungnabólgu, hjartaáföllum og lungnablóðreksstíflu.
Við meðhöndlun á andnauð hjá nýburum.
Við höfuðtaugakveisu.
Við meðferð á bruna í öndunarfærum og sem hluti af góðu verklagi við kolmónoxíðseitrun.
Í heimaþjónustu, fyrir sjúklinga sem þurfa langtíma súrefnismeðferð eða súrefnisvél.
Framleiðsla, meðhöndlun og notkun lyfjasúrefnis eiga að uppfylla gildandi reglugerðirVið uppfyllum kröfur í framleiðslu, eftirliti og dreifingu. Sem samstarfsaðili í heilbrigðisþjónustu gerum við meira en að dreifa hágæða súrefni. Við bjóðum upp á sérþekkingu, þjálfun og þjónustu sem þarf til að tryggja að súrefninu sé dreift á öruggan hátt.