Tvínituroxíð er notað sem svæfingarlyf og verkjastillandi lyf:
Það hefur samverkandi áhrif þegar það er notað ásamt öðrum svæfingarlyfjum til innöndunar eða íæð.
Það hefur lítil áhrif á öndun og blóðrás við svæfingu. Sjálfkrafa öndun er betri ef tvínituroxíð er notað samhiða öðrum algengum svæfingarlyfjum en þegar aðeins er notast við eitt virkt svæfingarlyf til innöndunar.
Hröð upptaka og hratt brotthvarf, auk getu til að viðhalda sjálfkrafa öndun, gefur hraðari verkun með notkun nýrra svæfingarlyfja en þegar svæfingarlyfið er notað eitt og sér.