Lítil leysni tvínituroxíðs í lífrænum vef og vökva þýðir í klínískum lækningum að blanda af tvínituroxíði/súrefni gefur hraða verkjastillingu og hraðan útskilnað frá lungum. Annar öryggisþáttur er samsetning lyfsins sem inniheldur blöndu af 50% tvínituroxíði og súrefni til að koma í veg fyrir súrefnisskort meðan á lyfjagjöf stendur.
LIVOPAN® er 50:50 blanda og má gefa hana með innöndun með andlitsgrímu, eða súrefnisbeisli. Flæði lyfsins má stjórna með sogventli sem er virkjaður af innöndun sjúklings. Búnaðurinn er hannaður til þess að verafæranlegur og auðveldur í notkun bæði innan og utan sjúkrahúss.
Blanda af tvínituroxíð ogsúrefni er gefin með innöndun og því þarf ekkiá að setja upp holnál. Ekki þarf svæfingalækni til að gefa verkjastillingu með þessari blöndu heldur má þjálfa starfsfólk til að sjá um lyfjagjöfina eins og bráðatækna, hjúkrunarfræðinga og ljósmæður.