Súrefnismeðferð í heimahúsum og einkum lausnir sem gera sjúklingum kleift að hreyfa sig meira og á auðveldari hátt, eru mikilvægir liðir í þróunaráætlun Linde Healthcare. Markmið okkar er að veita aukin lífsgæði, öryggi og einfaldleika þeim sjúklingum sem njóta súrefnisþjónustu í heimahúsum.
Við viljum þróa áfram markaðinn fyrir heimaþjónustu með því að einbeita okkur að meðferðarþjónustu sem eykur lífsgæði þessara sjúklinga. Linde Healthcare býður upp á öruggar heildarlausnir, allt frá lyfjalofttegundum, til þjónustu og viðhalds
HemLOX – Göngubúnaður fyrir fljótandi súrefni
HemLOX búnaður samanstendur af stórum tanki sem Linde Healthcare keyrir heim til sjúklings og skiptir reglulega út fyrir fullan tank. Tankurinn inniheldur rúma 30 lítra af fljótandi súrefni sem jafngildir 120 eins lítra súrefnishylkjum. Tankinum fylgir minna og léttara ferðaílát, taska sem fyllt er á afstóra tankinum. Þessi taska er borin eins og hliðartaska eða bakpoki og veitir sjúklingi möguleika á meiri hreyfanleika. Linde Healthcare býður upp á þrjár mismunandi tegundir af töskum: Stroller 1.2, Helios Plus 300 og Spirit 300 og Marathon.
LIV® Mini 2 L
LIV (Linde Integrated Valve) er útfærsla á súrefnishylkjum til að auðvelda notkun og bæta öryggi sjúklings í súrefnismeðferð. Ekki er lengur þörf á að eiga við fullan hylkjaþrýsting, skipta um þrýstijafnara, tengja flæðisstilla og engin hætta er lengur á leka. Innbyggði þrýstimælirinn gefur stöðugan þrýsting út (4,5 bör) og flæði sem stillt er fyrir viðkomandi meðferð. LIV Mini 2 L veitir súrefnisflæði sem nemur 0-6 lítrum á mínútu.LIV er með innbyggðan virkan innihaldsmæli, þrýstijafnara og flæðisstilli, sem gera búnaðinn einfaldan og öruggan. Auk þess eru færri aukahlutir sem þarf að fara yfir og tengja.
Stálhylki
Hylkin eru með 200 bara loftþrýsting. Til þess að geta notað innihaldið þarf því að tengja einhvers konar þrýstilækkandi búnað/þrýstijafnara sem lækkar þrýstinginn.
Skammtari – Sequoia og ECOlite4000
Skammtarinn Sequoia gefur frá sér lyfjasúrefni í því magni sem hann er stilltur á. Það gerir sömuleiðis ECOlite400ö en hann er líka hægt að stilla á sjálfvirka stillingu og þá stýrir hann súrefnismagni eftir líkamlegu álagi. Með notkun skammtara er hægt að láta súrefnishylkin endast margfalt lengur.
Skammtari - Horton's Demand
Skammtarinn Horton's Demand er sérstaklega hannaður fyrir sjúklinga með höfuðtaugakveis (Hortons). Horton's Demand tryggir að við innöndun fæst 100% lyfjasúrefnien þegar andað er frá sér stöðvast súrefnisflæðið. Með þessu endist súrefnishylkið margfalt samanborið við stöðugt flæði. Horton's Demand dregur einnig úr hættu á uppsöfnun súrefnis, til dæmis í fötum og húsgögnum og eykur þannig öryggi.
Súrefnisvél
Súrefnisvél er algengasti búnaðurinn fyrir súrefnismeðferð í heimahúsum. Súrefnisvélin gengur fyrir rafmagni og aðskilur súrefni í andrúmsloftinu. Megin kostir þessa búnaðar er að hann er hagkvæmur, tiltölulega viðhaldsfrír og gefur stöðugt súrefni.
Súrefnisvél vegur 15-25 kg og er staðbundinn búnaður þar sem hún þarf að vera tengd í rafmagn til þess að virka. Súrefnisvélin er því yfirleitt notuð ásamt göngubúnaði, t.d. með súrefnihylkjum.