Við svæfingu er lyfjasúrefni notað:
Við skurðaðgerð til að viðhalda súrefnismettun í vef.
Fyrir og eftir skurðaðgerð: Flestir sjúklingar fá súrefnismeðferð í nokkrar mínútur fyrir svæfingu inni á skurðstofu og eftir skurðaðgerð í vöknun eða þar til þeir hafa náð fullri meðvitund. Hins vegar þurfa sumir sjúklingar þurfi lengri tíma til súrefnismettunar fyrir skurðaðgerð, meðal annars þeir sem þegar eru með skerta öndunarstarfsemi, reykingamenn og sjúklingar sem gangast undir skurðaðgerð á kvið eða brjóstholi. Einnig getur verið gott fyrir þessa sjúklinga, auk eldri sjúklinga og þeirra sem fá öndunarbælandi lyf, að fá lengri súrefnismeðferð í vöknun og þegar þeir koma aftur á deildina til þess að draga úr hættu á súrefnisskorti og aukaverkunum.