Höfuðtaugakveisa (Hortons) er sjaldgæfur sjúkdómur sem kemur oftar framhjá körlum en konum. Hann kemur fram sem mjög skarpur höfuðverkur, yfirleitt kringum annað augað.
Höfuðverkirnir koma í bylgjum með endurteknum köstum og bylgjurnar koma á á nokkurra vikna eða nokkurra mánaða fresti.
Verkurinn byrjar snögglega og getur varað frá 15 mínútum upp í nokkrar klukkustundir. Yfirleitt koma eitt eða tvö köst á dag en þau geta orðið allt að átta á dag. Algeng einkenni meðan á köstum stendur eru rauð augu og táramyndun, augasteinninn verður lítill og augnlokið lafir. Stíflað nef og nefrennsli geta fylgt.
Áfengi í litlu magni getur komið kasti af stað ef einstaklingurinn er í miðri bylgju. Æðavíkkandi lyf, svo sem nítróglýserín, geta líka valdið köstum.
Meðferð með súrefni
Með súrefnisgjöf er oft hægt að stöðva eða draga úr köstunum á innan við 10-15 mínútum. Meðferðin felur í sér að sjúklingurinn andar að sér 100% lyfjasúrefni.