Langvinn lungateppa eða COPD er sambland berkjubólgu og lungnaþembu. Langvinn teppa myndast hægt og veldur skertri lungnastarfsemi sem ekki er hægt að endurheimta. Hins vegar má oft koma í veg fyrir að einkennin þróist frekar með því að hætta að reykja.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) áætlar að langvinn lungnateppa sé fjórða helsta dánarorsökin á eftir hjartasjúkdómum, krabbameini og heilablóðfalli. Þrátt fyrir þetta er sjúkdómurinn því miður allt of oft ekki greindur eða nægilega meðhöndlaður.
Dæmigerð einkenni eru hósti, mæði og slímmyndun. Algengir áhættuþættir eru langtíma reykingar, iðnaðarmengun, ofnæmi og endurtekin lungnabólga.
Rannsóknir á áhrifum súrefnismeðferðar gefa til kynna að hún bæti líftíma um allmörg ár og auki líkamlega getu.
Meðferðaraðferðir
Langtíma meðferð með súrefni er viðurkennd staðalmeðferð fyrir sjúklinga með langt gegna langvinna lungnateppu.
Til eru þrjár aðferðir við súrefnismeðferð heima við.
Fljótandi súrefni
Loftkennt súrefni á þrýstihylkjum
Súrefnisvélar
Læknar og hjúkrunarfræðingar ákveða hvaða búnaður hentar.
Sterkt samhengi er á milli reykinga og langvinnrar lungnateppu (u.þ.b. 90%). Til þess að hljóta ávinning af súrefnismeðferð þarf sjúklingurinn að hætta að reykja. Þetta skiptir einnig máli af öryggisástæðum þar sem reykingar valda aukinnieldhættu þar sem súrefni er notað.
Ávallt og eingöngu skal gefa súrefni í samræmi við fyrirmæli læknis. Ef þig grunar að búnaðurinn virki ekki sem skyldi skaltu hafa samband við heilbrigðisstarfsfólk eða þjónustuaðila.