Við svefn slaknar á vöðvum í efri hluta öndunarvegar (nefi, munni, hálsi og barka). Ef það slaknar um of á þeim er hætt við að öndunarvegir teppist. Margir einstaklingar hrjóta af þessum ástæðum. Stundum verður jafnvel erfitt um öndun. Ef öndunarvegir stíflast alveg stöðvast öndun tímabundið (kæfisvefn).
Kæfisvefn ásamt teppu er algengasta einkenni kæfisvefns og táknar að öndun stöðvast með endurteknum hætti við svefn. Í sumum tilvikum getur öndun stöðvast nokkur hundruð sinnum á hverri nóttu.
Kæfisvefn ásamt teppu (OSAS, Obstructive sleep apnoea syndrome) stafar af atvikum þar sem öndunarvegar teppast á nóttunni sem valda einkennum að degi til vegna skorts á svefni. Kæfisvefnsköstin valda súrefnisskorti sem í lengri tíma litið getur valdið aukinni hættu á háum blóðþrýstingi, hjartadrepi og heilablóðfalli.
Kæfisvefn er mjög algengur sjúkdómur sem greinist þó enn mjög sjaldan. Dæmigerður sjúklingur með kæfisvefn ásamt teppu er karlmaður eldri en 40 ára sem er í verulegri yfirþyngd en þetta getur þó komið fram hjá hverjum sem er.
Meðferðin felst í því að léttast ef slíkt á við, forðast áfengi og svefntöflur og notkun góms (mandibular advancement splint), ef við á. Næsta skref meðferðarinnar er notkun CPAP svefnvélar sem viðheldur þrýstingi í öndunarvegi þannig að hann helst opinn eða BIPAP svefnvélar viðheldur líka þrýstingi í öndunarvegi þannig að hann helst opinn en við mismunandi þrýsting eftir því hvort sjúklingur andar inn eða út.
Einkenni
Algengustu einkenni kæfisvefns eru:
Hrotur
Hlé á öndun í svefni
Óeðlileg þreyta að degi til
Rannsóknir sýna að kæfisvefn getur í lengri tíma litið leitt til sjúkdóma á borð við háan blóðþrýsting, hjartasjúkdóma, heilabilun og sykursýki. Sjúklingur verður einnig næmari fyrir álagi.
Meðferð
Það eru ýmsar aðferðir til að meðhöndla kæfisvefn. Sjúklingurinn getur t.d. reynt að bæta ástandið. Mælt er með einföldum reglum varðandi lífstíl sem fara hér á eftir.
Hafa reglulegan svefntíma
Hafa venjur og vera vanafastur þegar farið er í rúmið
Tryggja að rúmið sé þægilegt
Loftræsa svefnherbergið daglega
Forðast stórar máltíðir á kvöldin en þó ekki fara að sofa á fastandi maga
Ekki fara í heitt bað fyrir svefninn
Ekki sofna fyrir framan sjónvarpið
Ekki drekka áfenga drykki fyrir svefninn
Val meðferðar veltur á alvarleika sjúkdóms, aldri, öðrum sjúkdómum og hugsanlegum líkamlegum frávikum í nefi og hálsi. Algengar meðferðir erui:
Svefnvél (CPAP)
Gómur (í vægum tilfellum)
Skurðaðgerðir (slíkt er nú forðast í auknum mæli en kann að reynast nauðsynlegt ef um líkamlega stíflu er að ræða)
Svefnvél
Algengasta og árangursríkasta meðferðin við kæfisvefni er svefnvél (CPAP). Svefnöndunarvélin blæs andrúmslofti í öndunarvegi sjúklings gegnum grímu. Svefngæði og lífsgæði sjúklings batna oft hratt.
Hins vegar krefst meðferð með svefnvél nákvæmrar svefnrannsóknar.