Súrefnismeðferð getur bætt bæði gæði og lífslengd sjúklinga með langvinna lungnateppu - COPD1,2.
Með stuðningi frá Linde Healthcare er hægt að bjóða sjúklingum súrefnismeðferð í heimahúsum. Við höfum upp á að bjóða búnað og einstaklingsmiðaða þjónustu sem henta þörfum hvers sjúklings. Ný tækni og þjónusta okkar auðvelda sjálfstæði og hreyfanleika.
Fyrir sjúklinga í heimaþjónustu getur Linde Healthcare boðið upp á eftirfarandi:
Súrefnisvél sem dregur súrefni úr andrúmsloftinu
Lyfjasúrefni í hylkjum sem stuðningur við súrefnisvél.
Fljótandi lyfjasúrefni fyrir sjúklinga í heimahúsum sem þurfa að nota mikið lyfjasúrefni.
Með þessari þjónustu getum við veitt aðstoð og fræðslu eftir þörfum.
1 Nocturnal Oxygen Therapy Group. Continuous or nocturnal oxygen therapy in hypoxemic chronic obstructive lung disease: a clinical trial. Ann Intern Med 1980;93:391-8
2 Tarpy SP, Celli BR. Long-term oxygen therapy. N Engl J Med 1995;333:710-14