Höfuðtaugakveisa er þrálátur sjúkdómur þar sem sjúklingar fá sársaukafulla höfuðverki sem geta staðið allt frá nokkrum mínútum og upp í nokkrar klukkustundir.
Höfuðtaugakveisa hrjáir u.þ.b. einn af hverjum 10001 fullorðnum einstaklingum. Það eru oftastkarlmönnum á þrítugsaldri eða eldri og mjög oft hjá reykingamönnum2. Höfuðverkir koma oftast í köstum sem standa yfir í sex til 12 vikur, einu sinni á ári eða á tveggja ára fresti, oft á sama tíma á hverju ári2.
Sjúklingar með höfuðtaugakveisu þjást af miklum sársauka og þurfa á skjótri sjúkdómsgreiningu og viðeigandi meðferð að halda hjá taugasérfræðingi eða öðrum sérfræðingi. Flestir þurfa á fyrirbyggjandi meðferð að halda en bráðameðferð er einnig mikilvæg.
Mikið flæði lyfjasúrefnis frá Linde Healthcare hefur reynst árangursríkt sem bráðameðferð við höfuðtaugakveisu þegar það er tekið eins fljótt og unnt er þegar einkenni koma fram3.
(1) Goadsby PJ. Treatment of cluster headache. www.americanheadachesociety.org
(2) British Association for the Study of Headache. Guidelines for all professionals in the diagnosis and management of migraine, tension-type, cluster and medication-overuse headache. 2009. www.bash.org.uk
(3)Cohen AS, Burns B, Goadsby PJ. High-flow oxygen for treatment of cluster headache: a randomised trial. JAMA 2009;302:2451-7