Lyfjaloft er notað til innöndunar, til dæmis:
Sem hluti af flæði fersks lofts við meðferð í öndunarvél og/eða í svæfingu.
Sem drifefni við innöndun lyfja, til dæmis við innöndun með eimgjafa.
Sem hreint loft við umönnun sjúklinga sem hafa tilheigingu til sýkinga, til dæmis við líffæraígræðslu eða veruleg brunasár.
Lyfjaloft er afgreitt í þrýstihylkjum. Lyfjalofti er venjulega andað inn um slöngu í nef, súrefnisgleraugu eða með grímu.