Verkjadeyfandi og deyfingar-/svæfingaráhrif tvínituroxíðs hafa verið þekkt í meira en 150 ár. Fljótlega varð algengt að nota þessa lofttegund við svæfingu og hún er enn notuð á sjúkrahúsum um allan heim.
Tvínituroxíð er notað við deyfingu/svæfingu til innöndunar ásamt öðrum lyfjum. Þar sem tvínituroxíð hefur verkjadeyfandi verkun er það einnig notað ásamt súrefni til verkjastillingar, til dæmis við fæðingu, umönnun í sjúkrabíl, tannlækningar og minni sársaukafullar aðgerðir.
Tvínituroxíð er efnasamband sem inniheldur köfnunarefni og súrefni. Tvínituroxíð sem hefur efnaformúluna N2O er einnig nefnt hláturgas eða glaðloft. Tvínituroxíð hefur dauft og sætt bragð og lykt. Lofttegundin sem andað er inn er blanda af köfnunarefni, (nitur) i og súrefni.
Tvínituroxíð hefur hraða upptöku í blóði við innöndun. Lofttegundin berst með blóðrásinni til líffæra líkamans sem taka við og bera áfram verkjaboð, til dæmis til mænu og heila. Verkjaboðin minnkað um leið og losun endorfína eykst.