Súrefni er mikilvæg lofttegund og hefur mikla þýðingu í læknismeðferðum um allan heim, allt frá venjubundinni notkun og súrefnisnotkun í heimhúsum til bráðanotkunar.
Samkvæmt rannsóknum lengjast lífslíkur sjúklinga með t.d. langvinna lungnateppu eða kæfisvefn um mörg ár ef sjúklingur fær reglulega súrefnismeðferð. Þetta er einkum vegna þess að meðferðin gerir það kleift að lifa eðlilegu lífi.
Sem hluti af Linde Gas AB, Linde Healthcare í Svíþjóð, vorum við fyrst á Evrópumarkaði til að skrá súrefni sem lyf í samræmi við reglur þar að lútandi. Við tryggjum sérhvert skref ferilsins, framleiðslu, afhendingu og birgðaumsjón lyfjasúrefnis. Ef á þarf að halda getum við rakið alla okkar framleiðslu, áfyllingar og umbúðir.
CONOXIA® er lausasölulyf, en sem skylt er f að nota samkvæmt fyrirmælum læknis.
CONOXIA fæst í tveimur formumfljótandi og sem lofttegund. Lyfjasúrefni á gasformi er litlaust, lyktarlaust og bragðlaust.
Súrefni í heimahúsum
Til eru þrenns konar búnaður til súrefnismeðferðar í heimahúsum. Heilbrigðisstarfsfólk ráðleggur hvaða hentar.
Fljótandi lyfjasúrefni
Samanþjappað lyfjasúrefni á hylkjum
Súrefnisvélar
Skömmtun og búnaður
Gefið alltaf súrefni samkvæmt fyrirmælum læknis. i
Ekki gera tilraunir með skammta.
Notið aðeins þrýstijafnara og flæðimæla sem ætlaðir eru fyrir súrefnis.
Þrýstijafnari á hylkjumm táknar að háþrýstingur í hylkjum hafi verið minnkaður. Þetta táknar að súrefnið sem kemur út og andað er að sér er ekki undir háþrýstingi.
Þegar notast er við rakaglas skal ganga úr skugga um að það sé hreint og í uppréttri stöðu.
Örugg notkun
Ávallt skal lesa leiðbeiningarnar áður en búnaðurinn er notaður eða fluttur til.
Snertið ekki þá hluta HemLox búnaðarins sem frost sést á. Fljótandi súrefni er mjög kalt (-183°C) og ef það snertir bera húð getur það valdið kali á húð.
Ef grunur leikur á um að nýi búnaðurinn virki ekki skal hafa samband við heilbrigðisstarfsfólk eða þjónustuaðila. Aldrei skal reyna að laga búnaðinn sjálfur.
Slökkt skal vera á búnaði sem ekki er í notkun.
Viðhald er mikilvægt. Kviknað getur í fitu og olíu af sjálfu sér þegar slíkt kemst í snertingu við súrefni við háþrýsting. Því skal halda slíkum efnum frá lokum og tengjum og tryggja að engin fita komist inn í lokana þegar þrýstingsstillirinn er tengdur við búnaðinn. Hins vegar er óhætt að nota húðkrem eða varasalva við súrefnismeðferð.
Að ferðast með súrefni
Ef þú ert ekki viss hvort þú þurfir súrefni í flugi, hafðu þá samband við lækninn þinn.
Fæst flugfélög leyfa notkun búnaðar fyrir lyfjasúrefni um borð í flugvél. Því skal hafa samband við flugfélagið tímalega áður en lagt er í ferð.
Eldhætta
Súrefnier ekki eldfimt en eldnærandi og aukið súrefnismagn í lofti getur þannig aukið brunahraða til mikilla muna.
Setjið aldrei súrefnisgrímu eða súrefnisgleraugu á eða í vefnaðarvöru (föt, rúmföt) þegar skrúfað er frá súrefnisstreymi. Útstreymi súrefnis getur „mettað“ vefnaðarvöru, og þar með gert hana eldfima.
Ef grunur leikur á um að vefnaðarvara sé „súrefnismettuð“ er mikilvægt að viðra hana og lemja. Það er ekki nóg að láta lofta lítillega um hana.
Bann er við reykingum og opnum loga (svo sem kertum, ofnum og örnum) nærri súrefnisbúnaði.
Notið aldrei raftæki á borð við hárþurrkur eða brauðristar á meðan og þar sem súrefnismeðferð stendur yfir.
Ef eldur kemur upp skal slökkva á búnaðinum.
Súrefni við læknismeðferð
Notkun súrefnis er grundvallarmeðferð í nútíma læknismeðferð. Súrefnisauðgun lofts til innöndunar er grundvallaraðferð til að meðhöndla einkenni hjá sjúklingum sem sýna merki og einkenni um súrefnisskort. Súrefnismeðferð í heimahúsum kann að vera viðeigandi fyrir sjúklinga með langvinna lungnateppu, alvarlegan astma og kæfisvefn.
Lyfjasúrefni er almennt notað bæði á heilsugæslustöðvum, í sjúkrabílum, á bráðavöktum og á sjúkrahúsdeildum. Súrefnið er ýmist fengið úr stökum súrefnishylkjum eða úr dreifikerfi sjúkrahúsa.
Súrefni má gefa annað hvort með með slöngu í nef, súrefnisgleraugum eða með grímu. Við öndunarmeðferð á gjörgæslu og við svæfingu er lyfjasúrefni notað til að stýra súrefnisstyrk í innöndunarlofti sem hentar þörfum sjúklings.
Lyfjasúrefni er staðalmeðferð við kolmonoxíðseitrun, ýmist með miklu flæði undir venjulegum loftþrýstingi eða í alvarlegum tilvikum undir yfirþrýstingi (háþrýstingsmeðferð).