Tilbúin lofttegundablanda með 50% tvínituroxíði og 50% súrefni er notuð til meðferðar eða forvarnar þegar um er að ræða bráða verki sem vara skamman tíma (nefnast verkir í tengslum við aðgerðir). Algengt til notkunar við sársaukafullar meðferðir hjá börnum. Dæmi um meðferðir þar sem þetta er notað er þegar saumað er, við mænuástungu, inndælingu, hreinsun á sárum, sársaukafullan sáraumbúnað og fyrir börn sem hræðast nálar.
Þetta hefur marga kosti:
Snögg verkun
Ekkert inngrip, þ.e. engar nálar eða neitt annað sem veldur sársauka
Hverfur hratt
Áhrifin dofna hratt
Fáar og vægar aukaverkanir
Barnið getur borðað strax að aðgerð lokinni
Barnið getur farið heim eftir u.þ.b. 30 mínútur