Búnaður fyrir dreifikerfi lyfjalofttegunda er mikilvægur hluti af öllu dreifikerfinu. Hann tryggir að lyfið, lyfjalofttegundinberist sjúklingi á öruggan hátt, án truflana og í samræmi við gildandi kröfur og reglur um gæði.
Dreifistöð a - MQ eining
Með MQ einingunni er tryggt órofið aðstreymi lyfjalofttegunda. Þegar birgðir tæmast er þanning sjálfkrafa skipt yfir á varabirgðir.
Þrýstijöfnunarbox - SQ eining
Með SQ einingunni er hugsanlegur þrýstingsmunur í lagnakerfinu jafnaður út áður en lyfjalofttegundirnar berast til neytanda í hinum ýmsu deildum og byggingum sjúkrahússins.
Þrýstivakt - CCB eining
CCB einingin er þrýstivakt sem er sett upp á sjúkradeildum til þess að hafa samfellt eftirlit með þrýsting og til að hægt sé að loka snögglega og auðveldlega fyrir aðstreymi. CCB einingin gefur sjónræna viðvörun og hljóð þegar þrýstingur verður of hár eða of lár og ef þörf er á þá er hægt að tengja varabirgðir inn á deildina.
Þrýstivakt - CCB vakt
CCB vaktin er þrýstirofi sem er settur upp á sjúkradeildum til þess að hafa samfellt eftirlit með þrýstingog til að hægt sé að loka snögglega og auðveldlega fyrir aðstreymi. Hann hefur einnig innbyggða virkni sem vaktar súrefnisþrýsting þannig að hann sé alltaf hærri en þrýstingur tvínituroxíðs.
Neyðarventlakassi - AVS eining
AVS eining er neyðarventlakassi sem er settur upp við sjúkradeildir til þess að hægt sé á auðveldan hátt að loka snögglega fyrir allt aðstreymi lyfjalofttegunda í afmarkaðan hluta dreifikerfisins, til dæmis í neyðartilviki.