HBO er samþykkt meðferð við kafaraveiki.
HBO táknar að sjúklingi er gefið hreint súrefni við loftþrýsting sem er 2 til 3 sinnum eðlilegur loftþrýstingur. Þessi meðferð er gefin í þrýstiklefa sem m.a. er til á Lanspítala Háskólasjúkrahúsi. Með því að veita slíka meðferð er hægt að auka súrefnismettun í vefjum í allt að 10 sinnum hærri gildi en þegar lofti er andað við eðlilegan loftþrýsting.
Meðferðin er notuð við ýmsar kringumstæður þegar ná þarf góðri súrefnismettun út í vefi og einnig má nota hana til að fjarlægja kolmonoxíð hraðar úr blóðinu við kolmonoxíðeitrun og kafaraveiki þegar of hröð hækkun hefur leitt til þess að köfnunarefni leysist upp í líkamanum og þarfnast fjarlægingar.
HBO er einnig notað við ýmsar aðrar aðstæður með góðum árangri. Þar má nefna við alvarlegar sýkingar í mjúkvef, kolmonoxíðeitrun og þrálát sár af völdum lélegrar blóðrásar.