Linde Healthcare hefur þróað heildarlausn, INOmax® Therapy, til að gefa nituroxíð til innöndunar. Lausn okkar inniheldur búnað sem heldur utan um lyfjagjöf, kvörðun lofttegunda, skráningu meðferðar, þjálfun starfsmanna og þjónustu til að tryggja árangursríka verkun og hámarksöryggi fyrir sjúklinga. INOvent® skammtatæki passar við allar gerðir öndunarvéla og því er hægt að hafa stöðugt eftirlit með gefnu nituroxíði, súrefni og niturtvíoxíði.
Með öndunaraðstoð og öðrum viðeigandi lyfjum er INOmax ætlað til meðferðar á nýburum gengnum ≥ 34 vikur meðgöngu með öndunarbilun ásamt súrefnisskorti eftir að klínisk athugun eða hjartaómskoðun hefur leitt í ljós háþrýsting í lungum til að bæta súrefnisupptöku og draga úr þörf á súrefnismeðferð með hjarta- og lungnavél.