NIONTIX®, tvínituroxíð er notað sem svæfingarlyf og sem verkjastillandi lyf:
Það er hægt að nota ásamt svefnlyfjum, verkjastillandi lyfjum og svæfingarlyfjum. Það hefur samverkandi áhrif þegar það er notað ásamt öðrum svæfingarlyfjum til innöndunar.
Það hefur lítil áhrif á öndun og blóðrás við svæfingu. Sjálfkrafa öndun er betri ef notað er tvínituroxíð samhliða öðrum algengum svæfingarlyfjum til innöndunar en þegar aðeins er notast við eitt virkt svæfingarlyf til innöndunar.
Hröð upptaka og hratt brotthvarf, auk getu til að viðhalda sjálfkrafa öndun, gefur hraðari verkun með notkun nýrri svæfingarlyfjum til innöndunar en þegar svæfingarlyfið er notað eitt og sér.