Umsjón með birgðum lyfjalofttegunda á að vera örugg, skilvirk og auðveld. Það fer eftir landssvæði hvað þjónusta er í boði:
QI Tracking. Þjónusta á netinu, frá móttöku til afhendingarQI Tracking með hylkjum er einföld þjónusta sem gerir heilbrigðisstofnun mögulegt að fylgjast með og nota upplýsingar um staðsetningu og stöðu hylkja á öllum deildum heilbrigðisstofnunarinnar. Þetta getur m.a. hjálpað til við að fækka týndum hylkjum, staðsetja hylki ef þarf að innkalla þau, innkalla hylki úr ákveðinni lotu, hámarka notkun hylkja, draga úr tíma sem notaður er í stjórnun og sundurliðun kostnað á mismunandi deildir heilbrigðisstofnunar.
Almennt, r þjónustan QI Tracking er með innlestri á tölvukubb til að safna og vista gög. Þessi gögn eru vistuð í gagnagrunna með tölvuhugbúnaði eða á vefþjón. Starfsfólk sjúkrahúsa geta auðveldlega nálgast upplýsingar sem eru nauðsynlegar til að finna hylki, athuga birgðir eða auka við birgðir á deildum o.s.frv.
Ávinningurinn af QI Tracking er meiri en aðeins rekjanleiki. Aðgangur er að nýtingu og dreifingu hylkja með hliðsjón af hagkvæmni og umsjón með aðstöðu. Hægt er að kalla fram skýrslur með uppfærðum upplýsingum um staðsetningu, birgðir, umskipti hylkja, fyrningardagsetningar, týnd hylki, hylkjastöðu og öryggi.
QI Securesupply: Vöktun allan sólarhringin á kerfum lofttegundaVandi við vöktun á notkun og viðvörunum í kerfum lyfjalofttegunda er að skilaboðin komast ekki alltaf tímanlega til réttra aðila á sjúkrahúsinu. Það er oftast vegna þess að ekki er vitað hvað skilaboðin þýða og að ekki er skýrt hver á að móttaka skilaboðin til þess grípa til viðeigandi ráðstafana.
QI Securesupply er nýtt nettengt vöktunarkerfi sem er sérhannað til að túlka notkun og viðvaranir fyrir lyfjalofttegundir úr fjarlægð. Það sendir tölvupóst og smáskilaboð sem eru túlkuð og koma fram sem viðvaranir í kerfi fyrir lyfjalofttegundir . Þessi þjónusta kann einnig að veita ábyrgðaraðilum gagnvirkan aðgang að sérstakri vefsíðu. Þetta veitir fullkominn sveigjanleika fyrir fyrirhugaðar lokanir eða viðhaldsverkefni auk þess sem hægt er að kalla fram skýrslur um aðvaranir.