Með QI Medair (Lyfjaloft) og QI Medvac (Lyfjavakuum) bjóðum við þjónustu frá hönnun, birgðastjórnun og uppsetningu heildarstöðva á viðkomandi stað.
Uppsetningar stöðva uppfylla kröfur samkvæmt alþjóðlegum stöðlum og innihalda þrjár sjálfstæðar einingar fyrir upptöku lofts eða vakuums. Linde Healthcare hefur margra ára reynslu af rekstri slíkra stöðva og traust sambönd við framleiðendur l sem tryggir að kerfin eru áreiðanleg, traust og sterkbyggð.
Við sjáum um gæðakröfur, stöðlun, hönnun, uppsetningu, framkvæmd, rekstur og viðhald búnaðarins auk þess að veita reglulegar mælingar til að uppfylla GMP staðla. Ásamt lyfjalofti getum við einnig boðið uppsetningu á „blönduðu lofti“, ýmist sem aðalupptöku eða sem varabúnað fyrir þjöppur..
Það fer eftir svæðum hvaða viðskiptalíkan vð bjóðum upp á, allt frá mánaðarlegri áskrift fyrir úttaks loft og vakuum þar sem allt er innifalið til viðhalds eftir þörfum.
Frekari þjónusta gæti falið í sér birgðastjórnun til áhættusvæða ef truflun verður á venjulegri birgðastjórnun.