Köfnunarefni (lækningatæki) er sem stendur ekki fáanlegt. Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafðu samband við okkur með því að hringja eða senda tölvupóst.
Við getum hjálpað þér að uppfæra fyrirliggjandi lághitageymslulausnir eða hanna og setja upp nýjar geymslulausnir. Þannig tryggjum við hámarksöryggi fyrir starfsfólk sem og öryggi við geymslu lífsýna og lífrænna efna.
Í samvinnu við leiðandi birgja getum við boðið alhliða lághitageymslulausnir, svo sem fyrir stofnfrumur, beinmerg, blóð, sæði, egg og fósturvísa (glasafrjóvgun).
Linde Healthcare býr yfir langri og traustri þekkingu á lághitageymslulausnum. Fyrirtækið hefur umsjón með allri vörukeðjunni, hvort sem um er að ræða afgreiðslu fljótandi köfnunarefnis, afhendingu, hönnun og uppsetningu hágæðabúnaðar eða hönnun heilla geymslustöðva.
QI Cryo-kerfi samanstanda af lághitageymslulausnum og þjónustu til að tryggja örugga geymslu, eftirlit og meðhöndlun lífsýna og efna:
- Afgreiðsla fljótandi köfnunarefnis
- Hönnun og uppsetning geyma fyrir fljótandi köfnunarefni og leiðsla fyrir lofttegundir á vökvaformi
- Lághitafrystigeymslur (-80 °C til -196 °C) með sjálfvirkri áfyllingu fljótandi köfnunarefnis
- Lághitageymsluhylki
- Háþróuð kerfi til samfelldrar fjarvöktunar á lífsýnasafninu í heild eða hluta þess
- Viðvaranir fyrir hitastig og súrefnismagn
- Kerfi fyrir rekjanleika lífsýna
- Persónuhlífar
- Þjálfun
- Tæknilegur stuðningur, þjónusta og viðhald
- Áhættugreining
Linde Healthcare útvegar viðskiptavinum sínum heildarlausnir fyrir lífsýnasöfn.
Öryggi, gæði og hagkvæmni eru ávallt í forgangi hjá okkur.
Hafið samband við okkur í tölvupósti eða í síma ef óskað er nánari upplýsinga.