Sem þinn samstarfsaðili í heilbrigðisþjónustu getur Linde Healthcare ábyrgst að súrefnið sem þú reiðir þig á fyrir sjúklinga þína er framleitt samkvæmt ítrustu stöðlum hvað varðar gæði og nákvæmni.
Á sjúkrahúsum og á heilbrigðisstofnunum er CONOXIA® notað á eftirfarandi hátt:
Við meðhöndlun á súrefnisskorti og súrefnisþurrð í blóði.
Við skurðaðgerð til þess að halda uppi súrefnismettun í vef meðan á svæfingu stendur og til notkunar á deild fyrir og eftir aðgerð.
við endurlifgun.
Í öndunarvél vegna meðferðar við öndunarbælingu.
Við meðhöndlun á langvinnri lungnateppu (COPD), ryklungum, lungnabólgu, hjartaáfalli og lungnablóðrekastíflu.
Við meðhöndlun á andnauð hjá nýburum.
Við meðferð á bruna í öndunarfærum og sem hluti af góðu verklagi við kolmónoxíðeitrun.
Þar sem vandamál með umsjón súrefnis getur verið mismunandi á sjúkrahúsum vinnum við í nánu samstarfi við ykkur við að finna þær lausnir sem henta ykkur best. Við bjóðum upp á sérþekkingu, þjálfun og stuðning til að tryggja að dreifing súrefnissé nákvæm og örugg þegar á þarf að halda.